{"id":134,"date":"2019-10-22T16:19:32","date_gmt":"2019-10-22T16:19:32","guid":{"rendered":"http:\/\/sdor.viki.is\/?page_id=134"},"modified":"2019-12-04T17:41:21","modified_gmt":"2019-12-04T17:41:21","slug":"2001-2","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/sdor.viki.is\/index.php\/2001-2\/","title":{"rendered":"2001"},"content":{"rendered":"\n
M\u00e6lt af munni fram<\/strong><\/p>\n\n\n\n
L\u00edfi\u00f0 er ekki bara alvaran ein og \u00feess\nvegna \u00feykir okkur vi\u00f0 h\u00e6fi a\u00f0 setja upp svo sem einn d\u00e1lk \u00ed B\u00e6ndabla\u00f0inu \u00fear\nsem finna megi efni sem l\u00e9tti f\u00f3lki lund og la\u00f0i fram bros. \u00cd  \u00feessum d\u00e1lki ver\u00f0a sag\u00f0ar gamans\u00f6gur og ekki\ns\u00edst birtar v\u00edsur sem eiga erindi til allra.<\/p>\n\n\n\n
\u00de\u00f3rir Valgeirsson<\/em>, br\u00f3\u00f0ir Stef\u00e1ns, fyrrum al\u00feingismanns, var snjall hagyr\u00f0ingur. Eitt sinn\n\u00feegar hann var or\u00f0inn gamall og l\u00fainn orti hann \u00feessa v\u00edsu:<\/p>\n\n\n\n
\u00c1rin l\u00ed\u00f0a, ekkert m\u00e1 \u00fev\u00ed varna.
Ellin gerir nart \u00ed l\u00edfsins kjarna.
En hva\u00f0 me\u00f0 \u00feann sem h\u00e6ttur er a\u00f0 har\u00f0na,
helv\u00edtis,  b\u00f6lva\u00f0ur r\u00e6fillinn  s\u00e1 arna.<\/p>\n\n\n\n
\u00c1ri\u00f0 1957 kom fram tillaga \u00e1 Al\u00feingi um a\u00f0\ngera \u00edslenska gl\u00edmu a\u00f0 skyldun\u00e1msgrein \u00ed barnask\u00f3lum landsins. M\u00f3tb\u00e1rur komu\nfram og var bent \u00e1 a\u00f0 v\u00ed\u00f0a \u00fati \u00e1 landi, einkum til sveita, v\u00e6ru konur einu\nstarfsmenn sk\u00f3lanna og \u00feeim g\u00e6ti reynst erfitt a\u00f0 kenna \u00fdmis gl\u00edmubr\u00f6g\u00f0! \u00de\u00e1 var\n\u00feetta ort:<\/p>\n\n\n\n
V\u00edst met \u00e9g vorhug \u00feennan,
vefst \u00fe\u00f3 \u00ed huga m\u00ednum:
Hvernig \u00e1 kona a\u00f0 kenna
Krossinn \u00e1 J\u00f3n<\/strong>  <\/p>\n\n\n\n
Sigur\u00f0ur Sigur\u00f0arson d\u00fdral\u00e6knir<\/em> f\u00f3r til Lith\u00e1en og komst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 J\u00f3n Baldvin Hannibalsson var \u00fear \u00ed\nmiklum metum, enda haf\u00f0i \u00cdsland fyrst landa vi\u00f0urkennt sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0i Lith\u00e1en.\nSigur\u00f0ur er snilldar hagyr\u00f0ingur en hann hefur ekki vi\u00f0urkennt eftirfarandi\nv\u00edsu en \u00fe\u00f3 ekki bent \u00e1 annan h\u00f6fund:<\/p>\n\n\n\n
Lith\u00e1a er lj\u00faft og skylt a\u00f0 hylla,
langt var \u00feeirra frelsisstr\u00ed\u00f0 og g\u00f6fugt.
En alltaf finnst m\u00e9r ferleg \u00feeirra villa
a\u00f0 festa kross \u00e1 J\u00f3n en ekk \u00f6fugt.<\/p>\n\n\n\n
Hamingjan veit hver r\u00e6\u00f0ur<\/strong><\/p>\n\n\n\n
Allir sem unna v\u00edsum \u00feekkja til Stef\u00e1ns J\u00f3nssonar, fyrrum fr\u00e9ttamanns og al\u00feingismanns<\/em>.\nEftirfarandi v\u00edsa er s\u00f6g\u00f0 vera eftir hann enda alveg \u00ed hans st\u00edl:<\/p>\n\n\n\n
Einn gerir m\u00e1ske \u00f6\u00f0rum mein
en annar er betur st\u00e6\u00f0ur,
hann fer \u00ed banka hinn \u00ed stein
og hamingjan veit hver r\u00e6\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n
Sex vetra folinn<\/strong><\/p>\n\n\n\n
Flestir muna sj\u00e1lfsagt eftir \u00fev\u00ed \u00feegar\nP\u00e1ll P\u00e9tursson f\u00e9lagsm\u00e1lar\u00e1\u00f0herra \u00feurfti a\u00f0 leggjast inn \u00e1 sj\u00fakrah\u00fas vegna\nhjartaa\u00f0ger\u00f0ar. Hann ger\u00f0i sem minnst \u00far krankleika s\u00ednum og sag\u00f0ist myndi koma\n\u00fat af sp\u00edtalanum \u201eeins og sex vetra gra\u00f0foli.” \u00de\u00e1 var \u00feessi v\u00edsa ort:<\/p>\n\n\n\n
\u00c1stin bl\u00f3mstrar mest sem m\u00e1,
margar b\u00ed\u00f0a \u00feess \u00ed r\u00f6\u00f0um,
a\u00f0 fyrri kr\u00f6ftum safni s\u00e1
S\u00e1 snjalli hagyr\u00f0ingur Hj\u00e1lmar Freysteinsson l\u00e6knir<\/em> skipti um\nvinnusta\u00f0 n\u00fdlega. Hann sag\u00f0i alla g\u00f6mlu vinnuf\u00e9lagana hafa veri\u00f0 afar\nalmennilega vi\u00f0 sig s\u00ed\u00f0ustu dagana og \u00fe\u00e1 var\u00f0 honum a\u00f0 or\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n
\u00deeir sem gegnum \u00e1rin m\u00e9r l\u00edfi\u00f0 ger\u00f0u leitt
og l\u00f6ngum voru heldur vi\u00f0m\u00f3tskaldir,
eru n\u00fa svo gla\u00f0legir og brosa vi\u00f0 m\u00e9r breitt
\u00fev\u00ed br\u00e1\u00f0um eru dagar m\u00ednir taldir.<\/p>\n\n\n\n
\u00c1b\u00f3tavant<\/strong><\/p>\n\n\n\n
Hr\u00f3lfur Sveinsson<\/em> er sk\u00e1ldanafn \u00feekkts hagyr\u00f0ings me\u00f0 meiru. Hann orti eitt sinn \u00feessa limru\nog \u00fearfnast h\u00fan engrar sk\u00fdringar:<\/p>\n\n\n\n
Abbad\u00eds Birgitta Brant
er b\u00fastin og elegant,
Ja, hva\u00f0 er a\u00f0 heyra
en leitt er \u00fe\u00f3 meira
Ketill \u00de\u00f3risson fr\u00e1 Baldursheimi var\nfr\u00f3\u00f0ur ma\u00f0ur og \u00fe\u00e1 ekki s\u00edst \u00ed \u00e6ttfr\u00e6\u00f0i, en hann var b\u00fdsna d\u00f3mhar\u00f0ur \u00e1 menn og\nm\u00e1lefni. Sagt er a\u00f0 Fri\u00f0rik Steingr\u00edmsson\nfr\u00e1 Gr\u00edmsst\u00f6\u00f0um<\/em> hafi ort \u00feessa v\u00edsu um Ketil:<\/p>\n\n\n\n
\u00cd \u00e6ttfr\u00e6\u00f0inni er hann Ketill \u00e1rans refur,
ekki m\u00f6rgum h\u00e1a einkunn gefur,
en hann veit upp \u00e1 h\u00e1r,
\u00ed hart n\u00e6r \u00fe\u00fasund \u00e1r,
\u00cd tilefni ostadaga 2001<\/strong><\/p>\n\n\n\n
Gu\u00f0ni \u00c1g\u00fastsson landb\u00fana\u00f0arr\u00e1\u00f0herra opna\u00f0i\nOstadaga \u00ed Perlunni \u00e1 d\u00f6gunum. Hann haf\u00f0i or\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed vi\u00f0 J\u00f3n<\/em> Kristj\u00e1nsson\nheilbrig\u00f0isr\u00e1\u00f0herra<\/em> a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u00ed raun ekkert s\u00ed\u00f0ur hans verk a\u00f0 flytja r\u00e6\u00f0u\n\u00e1 Ostad\u00f6gum enda ostur hollur matur og heilsuf\u00e6\u00f0i, auk \u00feess a\u00f0 vera\nlandb\u00fana\u00f0arafur\u00f0. J\u00f3n svara\u00f0i Gu\u00f0na svona:<\/p>\n\n\n\n
\u00c1n\u00e6gjan h\u00fan af m\u00e9r sk\u00edn
er ostinn s\u00e9 \u00e9g br\u00fana,
beinin \u00fe\u00edn og beinin m\u00edn
brotna s\u00ed\u00f0ur n\u00fana.<\/p>\n\n\n\n
Koti\u00f0<\/strong><\/p>\n\n\n\n
\u00dea\u00f0 var ekkert sm\u00e1r\u00e6\u00f0i sem gekk \u00e1 \u00feegar\nSm\u00e1ralindin opna\u00f0i \u00e1 d\u00f6gunum. Me\u00f0al \u00feeirra sem ofbau\u00f0 h\u00fallumh\u00e6i\u00f0 var H\u00e1kon A\u00f0alsteinsson, sk\u00e1ld og sk\u00f3garb\u00f3ndi a\u00f0\nH\u00fasum \u00ed Flj\u00f3tsdal<\/em>. Hann orti \u00feegar mest gekk \u00e1:<\/p>\n\n\n\n
H\u00e9r lifir frelsi\u00f0 og framapoti\u00f0,
framkv\u00e6mdin ber ekki vott um n\u00edsku.
N\u00edu milljar\u00f0a kosta\u00f0i koti\u00f0
L\u00edfsins lykill<\/strong>  <\/p>\n\n\n\n
Um \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur t\u00e6plega deilt a\u00f0 Vatnsenda-R\u00f3sa<\/em> var einhver mesti\nmeistari ferskeytlunnar sem uppi hefur veri\u00f0 h\u00e9r \u00e1 landi og \u00fearf ekki anna\u00f0 en\na\u00f0 benda \u00e1 \u201eV\u00edsur Vatnsenda-R\u00f3su” \u00ed \u00fev\u00ed sambandi. H\u00fan var talin g\u00f3\u00f0\nyfirsetukona og var oft k\u00f6llu\u00f0 til sem sl\u00edk. Eitt sinn var h\u00fan k\u00f6llu\u00f0 til\na\u00f0sto\u00f0ar s\u00e6ngurkonu. Ve\u00f0ur var vont og yfir fj\u00f6ll a\u00f0 fara og f\u00e9kk h\u00fan \u00fev\u00ed fylgdarmann.\nAllt gekk vel og \u00feegar R\u00f3sa sn\u00e9ri heim \u00e1 lei\u00f0 fylgdi sami ma\u00f0ur henni til baka.\n\u00de\u00e1 haf\u00f0i ve\u00f0ur gengi\u00f0 ni\u00f0ur og einhverju sinni \u00feegar \u00feau settust ni\u00f0ur til a\u00f0\nhv\u00edla sig orti R\u00f3sa \u00feessa v\u00edsu til fylgdarmannsins:<\/p>\n\n\n\n
Ve\u00f0rasl\u00e1tt fyrst v\u00e6gja fer,
vopna s\u00e1tti \u00e1lfur,
l\u00edfinu m\u00e1tt’upp lj\u00faka \u00e1 m\u00e9r,
lykilinn \u00e1ttu sj\u00e1lfur.<\/p>\n\n\n\n
A\u00f0 lei\u00f0arlokum<\/strong><\/p>\n\n\n\n
H\u00e1kon A\u00f0alsteinsson<\/em> kallar \u00feessa v\u00edsu A\u00f0 lei\u00f0arlokum<\/strong>:<\/p>\n\n\n\n
\u00deegar vi\u00f0 \u00c1smundur dag
nokkurn deyjum,
\u00e1 dyrnar \u00ed helv\u00edti kn\u00fdjum.
\u00de\u00e1 ver\u00f0ur oss fagna\u00f0 af
fr\u00e6ndum og vinum
A\u00f0 hno\u00f0a leirinn<\/strong> <\/p>\n\n\n\n
Torfi J\u00f3nsson<\/em>, fyrrum ranns\u00f3knarl\u00f6gregluma\u00f0ur<\/em>, er flestum v\u00edsnavinum kunnur enda\nhefur hann s\u00e9\u00f0 um v\u00edsna\u00fe\u00e6tti \u00ed bl\u00f6\u00f0um, safna\u00f0 og s\u00ed\u00f0ast en ekki s\u00edst ort g\u00f3\u00f0ar\nv\u00edsur. Hann hefur hins vegar ekki veri\u00f0 mj\u00f6g \u00e1n\u00e6g\u00f0ur me\u00f0 sj\u00e1lfan sig \u00feegar hann\norti \u00feessa v\u00edsu:<\/p>\n\n\n\n
Mig hefur jafnan skilning skort,
skapanornirnar g\u00e1fu ei meir.
Get \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki ort,
a\u00f0eins hno\u00f0a\u00f0 saman leir.<\/p>\n\n\n\n
V\u00edsum sel<\/strong><\/p>\n\n\n\n
Eysteinn G. G\u00edslason \u00ed Sk\u00e1leyjum segir svo\nfr\u00e1: ,,Selur hefur l\u00f6ngum veri\u00f0 vel \u00feegin l\u00edfsbj\u00f6rg, ekki s\u00edst fyrr \u00e1 t\u00edmum.\nKrist\u00edn J\u00f3nsd\u00f3ttir afasystir m\u00edn mun hafa sagt m\u00e9r eftirfarandi s\u00f6gu: \u00deorm\u00f3\u00f0ur \u00ed Gvendareyjum<\/em> (galdrama\u00f0ur)\nvar f\u00e1t\u00e6kur og eitt sinn er kona hans l\u00e1 \u00e1 s\u00e6ng var b\u00fai\u00f0 svo allslaust a\u00f0\nhvorki var til matur n\u00e9 lj\u00f3smeti, en \u00feetta var a\u00f0 vetrarlagi. \u00deorm\u00f3\u00f0ur gekk \u00fe\u00e1\n\u00fat og kva\u00f0:<\/p>\n\n\n\n
M\u00fdk \u00fe\u00fa Drottinn m\u00edna raun,
m\u00e6ni \u00e9g til \u00fe\u00edn hj\u00e1lpin v\u00e6n.
Send m\u00e9r \u00fe\u00edna bjargarbaun,
b\u00e6nheyr mig l\u00edfs eikin gr\u00e6n.<\/p>\n\n\n\n
S\u00ed\u00f0an gekk hann til sj\u00f3var og hitti \u00fear \u00ed\nfj\u00f6ru st\u00f3reflis \u00fatsel sem hann gat lagt a\u00f0 velli. \u00dear me\u00f0 haf\u00f0i hann fengi\u00f0\nr\u00edkulegan for\u00f0a af mat og lj\u00f3smeti. Sl\u00edk g\u00e6\u00f0i l\u00f6g\u00f0u selir til um li\u00f0nar aldir,\na\u00f0 \u00f3gleymdum h\u00fa\u00f0unum, til skj\u00f3lfatna\u00f0ar og sk\u00f3ger\u00f0ar sem hafa l\u00f6ngum veri\u00f0\nver\u00f0m\u00e6t \u00fatflutningsvara.\u201c<\/p>\n\n\n\n
Karlremba<\/strong><\/p>\n\n\n\n
H\u00e1kon A\u00f0alsteinsson, sk\u00e1ld og sk\u00f3garb\u00f3ndi<\/em>, var eitt be\u00f0inn a\u00f0 svara \u00fev\u00ed hva\u00f0 karlmenn hef\u00f0u\nfram yfir konur og svara\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n
Oft m\u00e1 gla\u00f0an \u00f6\u00f0ling sj\u00e1
\u00fat \u00ed n\u00e1tt\u00farunni.
Hafa b\u00e1\u00f0ar hendur \u00e1
hengipl\u00f6ntu sinni.<\/p>\n\n\n\n
En hva\u00f0 hafa konur fram yfir karlmenn?<\/p>\n\n\n\n
\u00deetta fl\u00e6kist fyrir m\u00e9r
\u00fe\u00f3 flest \u00e9g viti og \u00feekki.
\u00deessi spurning \u00fev\u00e6lin er,
\u00dar f\u00f3rum \u00feular<\/strong> <\/p>\n\n\n\n
\u00dar f\u00f3rum \u00feular<\/em> heitir n\u00fd\u00fatkomin b\u00f3k\neftir \u00feann kunna \u00fatvarps\u00feul P\u00e9tur\nP\u00e9tursson<\/em>. \u00cd b\u00f3kinni eru s\u00f6gur og fr\u00e1sagnir \u00far handra\u00f0a P\u00e9turs. Einn kafli b\u00f3karinnar\nheitir \u201eListamannahverfi \u00ed Vesturb\u00e6.” \u00dear segir P\u00e9tur fr\u00e1 nokkrum\nlistam\u00f6nnum sem b\u00fai\u00f0 hafa \u00ed Vesturb\u00e6num, \u00fear \u00e1 me\u00f0al s\u00e9ra Sveini V\u00edkingi<\/em>, sem var m.a. hagyr\u00f0ingur g\u00f3\u00f0ur. Eitt sinn haf\u00f0i\nh\u00f3pur kvenna umkringt s\u00e9ra Svein og ger\u00f0ust sumar fr\u00farnar svo n\u00e6rg\u00f6ngular vi\u00f0\nhann a\u00f0 s\u00e9ra Sveini \u00fe\u00f3tti n\u00f3g um og orti \u00fe\u00e1:<\/p>\n\n\n\n
Virkilega vi\u00f0 m\u00e9r br\u00e1
og varla \u00feola m\u00e1tti,
\u00feegar \u00fe\u0153r f\u00f3ru a\u00f0 \u00fereifa \u00e1
\u00fev\u00ed sem konan \u00e1tti.<\/p>\n\n\n\n
Vaxtar\u00e6ktar vi\u00f0kv\u00e6m m\u00e1l<\/strong><\/p>\n\n\n\n
\u00cd b\u00f3kinni Me\u00f0 l\u00edfi\u00f0 \u00ed l\u00fakunum<\/em> eru nokkrar s\u00f6gur og v\u00edsur um og eftir P\u00e9tur P\u00e9tursson\nfr\u00e1 H\u00f6llust\u00f6\u00f0um, l\u00e6kni \u00e1 Akureyri. Fyrir nokkrum \u00e1rum sag\u00f0i P\u00e9tur \u00ed\n\u00fatvarpsvi\u00f0tali a\u00f0 vaxtar\u00e6ktarmenn v\u00e6ru i\u00f0ulega mi\u00f0ur vaxnir ni\u00f0ur en upp vegna\nsteranotkunar og a\u00f0 \u201eeistun \u00e1 \u00feessum r\u00e6flum r\u00fdrna og ver\u00f0a r\u00e6filsleg.” \u00cd\nkj\u00f6lfari\u00f0 h\u00f6f\u00f0u\u00f0u nokkrir vaxtar\u00e6ktarmenn mei\u00f0yr\u00f0am\u00e1l \u00e1 hendur P\u00e9tri en a\u00f0\nlokum t\u00f6pu\u00f0u \u00feeir m\u00e1linu \u00ed H\u00e6star\u00e9tti. \u00de\u00e1 orti H\u00e1kon<\/em> A\u00f0alsteinsson<\/em> \u00feessa\nv\u00edsu til P\u00e9turs:<\/p>\n\n\n\n
Loks er P\u00e9tri l\u00e9tt \u00ed s\u00e1l,
laus \u00far \u00f6llum vanda.